Artwork image
Artwork by
Paolo Girardi

Brenndar Rústir & Fuðrandi Fjörur

Forsmán

June 26th, 2026
8 tracks
44:17
Brenndar Rústir & Fuðrandi Fjörur
Brenndar Rústir & Fuðrandi Fjörur
Valdníðsla
0:00
4:23
Drottinn fyrirgefur allt
Forsmán
Kerfisbundnar útrýmingar. Gildislausar aftökur. Ein helför á eftir annarri til að þóknast því heilaga. Hvað liggur handan við myrkrið? Hvers vegna stend ég enn? Hvaða hirði skal fylgja? Hvenær mun paradísin birtast mér? Er okkur ætlað að ráfa í angist um dalinn í leit að heimum sem augum okkur var aldrei ætlað að sjá? Og ef svo, hví þá? Maðurinn með ljáinn Er ég loksins dáinn? Blessaði mig áin? og hræ mitt hirti upp kalt? Ég endalokin dái, og dormann helga þrái. Mínu rotna fræi sái. Því Drottinn fyrirgefur allt. Erfiðin sem árin átu upp. Ekkert nema grátleg tilraun til að særa fram hina heilögu anda einskis. Ískalt myrkur, og eilíft ekkert. Óttinn sem mun ávallt knýja hatrið. Gagnslaus þráhyggja. Óverðskulduð von. Vanþökk og hræsni. Heift, græðgi og vol. Þeir sem neita að fylgja, og þeir sem dirfast að efast eru grýttir, fláðir og fleygt á bálið. Maðurinn með ljáinn Erum við loksins dáin? Ávaxtaðist þráin? Sem lífið át upp kalt? Við rotnum fræjum sáðum og svarta svani þjáðum. En daglega við báðum, því Drottinn fyrirgefur allt.
5:19
Svartir svanir
Forsmán
Bastarðar baðast í lofum hræsnara Á meðan smáblómin grafa eftir flyksum af siðsemd og sanngirni. Rífa í sig allt sem illúðin innra með girnist. Grisjun gæskunnar nakti rándýrið sem faldist bak við innihaldslaus áheitin. Brotin bakbein stöðnuðu vöxtinn. Eitruð hugsjón hindraði yfirvofandi framför. Um veraldir vonskan hlykkjast. Í hjörtunum iðar svört. Að eldinum úlfarnir flykkjast. Því leikslokin nálgast ört. Af ástríðu byggðri á hatri Að ræflunum ýlfra í kór: Hvaða eyðimörk geymir svörin? Skildu syndugir drýgja hór? Með auðtrú og blindum augum Byggja illfyglin hreiður á draumum. Sækja svörin með eyðingu og eldi. Til að reisa sín ræfla einveldi. Í örmögnun óskir flögra. Á örstundu í öskuna falla. Svartir svanir! Kulnuð hræ! Brostnar vonir! Visnuð fræ! Merin fagra tælir, Og frá okkur alla fælir. Dulúð drottnarans dvínar þegar rándýrin nekja vítin sem leynast á bak við galtóm augnaráðin. Visnandi jörð það eina sem átökin veittu. Bitrir vanvitar hrifsa að sér ylfinga sem ráfa of langt frá myrkrinu, í átt að auðnini. Hvaða hálfguð mun hjálpa þeim hreinu? Hefur gyðjan yfirgefið illveldin? Svartir svanir! Kulnuð hræ! Brostnar vonir! Visnuð fræ! Merin fagra tælir, Og frá okkur alla fælir! Gróðurinn visnar. Svanir svamla í sulti og seyru. Böðullinn brýnir blaðið. Drottnarinn hlær. Svartir svanir. kulnuð hræ. Brostnar vonir. visnuð fræ. Söltuð sárin hylja tárin, Aldirnar og árin í prísund sem ræfilinn þjáði. Sólir setjast. Pestir klekjast úr tómum kviðum, Að rotnum siðum. Gruggug fljótin fæða flónin! Fóstra sóttirnar og lóga ljósunum! Hjörtu okkar hertust með tíðum. En ljósið dofnaði í stormum og hríðum. Kulnaði og gaf sig í frosti. Náhvíta merin starði og brosti. Við andvana fæddumst á bergi. Í þögninni þjáðumst við tárvotar grafir. Vonir vindana báru okkur hvergi. Gyðjurnar féllu, frelsunin fórst.
6:53
Andvana
Forsmán
Andaðar mæður arka að hrynjandi hofum. Hvers vegna liggja lömbin þeirra köld í yfirfullum skurðum? Hvaða sadísku geldingar munu svara fyrir afmynduðu sakleysingjanna, svefnlausu næturnar og afskræmdu sálirnar? Vitfirrtu mannleysur reynið að réttlæta rotnandi englana, blóðugu rústirnar og skraufþurru lindirnar. Traðkandi á hjörtum bugaðra vesælinga í fílabeinsturnum reistum á grafreitum kúgaðra. Hversu margar fjöldagrafir þarf að fylla til að þið sjáið loksins hræsnina í hatrinu? Hversu oft þarf sagan að endurtaka sig áður en þið sjáið heimskuna í harkinu? Flaggið hvítu og sameinist á Golgata. Vefjið reipunum fast um hálsa hvers annars, stökkvið af klettunum og endið átökin. Í örvæntingu er auðvelt að fjötra váboðann, kæfa aumingjann og farga ógninni. En þrátt fyrir að óttinn hafi leitt okkur frá óvissunni að örygginu, ruddu vanrækslan og valdafíknin veginn að endalokum alls sem okkur snerti.
6:02
Valdníðsla
Forsmán
Heitir sandar svíða iljar. Týndur í þurru, hrjóstrugu landi Með enga kennd fyrir samstöðu. Skrælnaður og villtur. Skertur af nánd. Einum fæti handan ríkis hinna lifandi Sé ég þig Logandi af glæsileika og fegurð. Þú finnur mig . Þú setur þitt stefnumið einungis á eigin sérgæði. Hof eilífðar stendur í miðri eyðimörkinni Ég ráfa í gegnum tröppur óróleikans Á milli leynast Þöglar meinvættir sem hverfa í myrkrinu. Hönd þín hrifsar mig til þín. Vefur mig í völundarhús lyga. Illvættir ótæmdir, naga tungurnar af Maðkar skríða inn í mér Áfram tíminn líður Klossfastur í eillífri prísund Frjáls úr haldi Jaðar heimsins kulnaði. Fyrirlitningin étur þig að innan Blind fyrir hugkennd annarra. Á enda jarðar finn ég þig Húðin þín sviðin, hold þitt ristað Sjálfsútrýmingin. Valdníðslan mulinn. Elífða fórnarlambið.
4:23
Kynjamyndir
Forsmán
Allt er farið. Ekkert grær, ekkert frjóvgast. Engu tókst að fyrirbyggja endann. Fjöllin tignarlegu hrjóstrug, svört og hol. Frosin auðn umlykur brenndar rústir og fuðrandi fjörur. Allt er farið. Ekkert fékk að endast. Lausnin reyndist vera að brenna það allt. Grafa leiðin, mölva bergið, tæma höfin. Kæfa dísina sem ávallt gaf og míga á nakið lík hennar. Eitruð rándýr spýjandi angist og eitri Sköpuð til að skapa sóttir, sár og hatur. Lepja synd og lifa í óttafylltri alsælu. Éta upp allt sem hjörtun þjáðu þrá. Fjötra, smána og saurga Vanvitar byggðu turna á sandi. Sadistar misþyrmdu öllu á sæ og landi. Skítseiðin dreifðu saur og hlandi. Og úr spillingu fæddist aleyðandi fjandi.
3:30
Lof mér líf þitt að taka
Forsmán
Heigulsháttur siðleysingjans dreifir sér ört um ófrjóan jarðveg og skýtur rótum sínum í huga meðvirkra vanvita. Bergmálar í eyrum samsekra og sundrar stórveldum. Réttdræp meindýr krafla sig upp úr ræsinu og elta uppi allt sem lostann linar. Örfáir drukkna í tárum tætra. En rísa alltaf aftur á ný. Hverfa í örstund í myrkrið En flykkjast úr skuggum í skjóli nætur. Pestir sem þamba þjánna sem flæðir án afláts um göturnar. Lof mér hold þitt að rista! Lof mér lim þinn að sundra! Lof mér ást þinni að eyða! Lof mér líf þitt að taka! Ragi ræfill! Hafir þú hvorki hreðjar né hug, til að losa okkar andsetna berg við þitt skítuga hræ. Lof mér þá að linna hatrið, ástina og lostann. Lof mér að lóga þér! Lof mér! Lof mér líf þitt að taka! Djöfullinn lét mig… Geldum sóttirnar og drögum þær naktar gegnum götur óttans. Berjum þær svartar og bláar. Hengjum þær hátt á toppum hofanna. Aflimum ófreskjuna sem að eilífðirnar hirti. Afhöfðum orminn sem át í sig vonirnar og þrárnar og skeit þeim í gjárnar. Hvíl í skólpi og svívirðu.
3:52
Hræ hins almáttuga
Forsmán
Ofsóknar-brjálæði tekur yfir Fræ álmáttugs brennur yfir land og sæ Hræ almáttugs hlær við tilhugsunina um eilíft líf, Ákvarðirnir og gjörðir okkar sem endurtaka sig Aftur… og aftur… Þar til bölvuninni er aflétt Leiðir okkur að hlýða honum, árum saman. Vísvitandi að hann sé verk ímyndunaraflsins Stjórn, græðgi og losta Felur sig í hugarangri skepnanna mannhræðslan svo sterk Svo auðvelt að fela sig bak við rit (fláræði) alföðursins Fylgdu mer og eg skal sýna þér eilífðar frið; Botnlausa holu svívirðingar, hugklofnun og lauslæti Himinskepnan hrífsar út hendur fegurðinnar, lofar eilífðar ró Heimsins bölvanir leggist á yður Heimsyfirtakan byrjar á ný Herjum á kotungana Herjum á völvurnar Herjum á þjónana Herjum á foringjana Heims Yfirtakan heldur áfram Þráhyggjan Meinlokan Áráttan Skynvillan hrynjandi, brennandi, híbýli Sem enginn má sjá aftur Logandi alrými, misnotað í ýmsar athafnir í nafni föðurins Í nafni djöfulsins
6:44
Barmafylltar fjöldagrafir
Forsmán
Ég fuðra burt í hyldýpi hins eilífa einskis. Ég finn svarthol tælinganna og lofanna kyngja mér heilum. Ég brenn til ösku sem sameinast stjörnunum. Andvana, ófæddir stjörnu þursar glóa af leyfum fallinna ættbálka. Ég ranka við mér í kolsvartri auðn. Spýandi ösku og sjúgandi skammir alls og allra. Vanræksla blekkjandi spámanna; falskir eiðir, gölluð sjálfsímynd og óunnið stolt. Logandi, barmafylltir fjöldagrafir. Framandi furðuhlutir fylla friðsælu himinhvolfin. Nístandi þögn, eyðandi alsæla. Engin heyrir ýlfrið né ópin. Sama hversu há. Enginn heyrir Eitt skref áfram tvö skref aftur á bak. Volæðis vítahringurinn endurtekur sig aftur og aftur.
7:34

FORSMÁN are a black metal band from Kópavogur, Iceland. After their debut EP "Dönsum í logans ljóma", the members — all only in their early twenties — have been working intensively on new material. Concrete news will follow soon, but the band’s direction is already clear: FORSMÁN (pronounced "fors-mown") stand in the line of modern Icelandic black metal associated with SVARTIDAUÐI, SINMARA, and MISÞYRMING, combining dense atmosphere with focused, forward-driving songwriting. Expect urgent riffing, decisive rhythms, and vocals that cut through a cold, enveloping haze. FORSMÁN are part of a new generation coming out of Iceland with a strong sense of identity, and anyone drawn to the country’s contemporary black metal sound should keep a close eye on what comes next.

Credits

V. bass, vocals

H. Guitar  

O. Guitar, vocals

M. Drums